Viðbúnaður vegna farþegaflugvélar

  • _MG_0632

Föstudagur 26. október 2012

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 12:42 tilkynning frá flugstjórn Isavia um Airbus 332 farþegaflugvél með 338 farþega um borð sem misst hafði afl á öðrum hreyfli og óskaði eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli, áætlaður komutími kl. 14:32. Var flugvélin staðsett rétt fyrir utan íslenska flugstjórnarsvæðið,  á leið frá Bandaríkjunum til Bretlands.

Settur var í gang viðbúnaður Landhelgisgæslunnar varðandi leit og björgun loftfara og einnig virkjaði flugturninn í Keflavík viðbúnað á flugvellinum í samræmi við viðbragðsáætlun þeirra. Lenti flugvélin heilu og höldnu kl. kl. 14:38.

Haft var samband við varðskipið Þór og það beðið um að sigla á fullri ferð að flugleið vélarinnar, einnig voru þyrlur Landhelgisgæslunnar og
 björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á SV horni landsins  sett í viðbragðsstöðu. Auk þess var haft samband við báta og skip á svæðinu, þau upplýst um stöðuna og beðin um að fylgjast með. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Keflavík fylgdist einnig með flugvélinni á ratsjám íslenska loftvarnakerfisins.