Sprengjudeildin aðstoðar í ófærðinni - Aðstoðarbeiðnir af fjöllum berast í gegnum neyðar- og uppkallsrás skipa

  • photo3

Miðvikudagur 6. mars 2013

Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar voru í morgun kallaðir til aðstoðar lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna ófærðarinnar. Fylgja ökutæki þeirra nú neyðarbílum í útköll og tryggja greiðan aðgang þeirra um höfuðborgarsvæðið. En þess má geta að þessir aðilar eru einnig með réttindi til sjúkraflutninga.

Einnig eru nokkur dæmi um að vegfarendur á fjallvegum og heiðum víða um land hafi gert vart við sig á neyðar- og uppkallsrás skipa í morgun, þ.e. rás 16 og þannig náð sambandi við  stjórnstöð Landhelgisgæslunnar sem síðan hefur hefur komið upplýsingum og aðstoðarbeiðnum áfram til lögreglunnar.

Myndir SOS

photo1
Samvinna í ófærðinni

EOD_bil
Annar af tveimur bílum sprengjudeildar