Varðskipið Þór heimsækir Patreksfjörð um helgina

  • ÞOR Arni Saeberg

Fimmtudagur 14. mars 2013

Varðskipið Þór er væntanlegt  til Patreksfjarðar um helgina og er áætlað að skipið verði opið til sýnis á laugardag frá kl. 13:00-16:00. Áhöfn varðskipsins mun leiða gesti um skipið, segja frá tækjabúnaði og getu þess.  Landhelgisgæslan hvetur fólk til að koma um borð og skoða hið glæsilega varðskip sem er bylting í vöktun, öryggismálum,  leit og björgun innan íslenska hafsvæðisins.

Að öllu jöfnu eru 18 manns í áhöfn skipsins sem er sami fjöldi og á varðskipunum Ægir og Týr. Á meðal verkefna sem skipinu er ætlað að sinna eru: eftirlit- og löggæsla á hafinu, fiskveiðieftirlit, leit og björgun, dráttarverkefni, slökkvistörf, viðbrögð við umhverfisslysum, sjómælingar og einnig getur Þór orðið að fljótandi stjórnstöð í almannavarnaaðgerðum. Einnig geta þyrlur Landhelgisgæslunnar tekið eldsneyti á flugi yfir varðskipinu.

Nánari upplýsingar um varðskipið eru hér.