Mannbjörg þegar eldur kom upp í fiskibát

  • Krummi1

Mánudagur 13. maí 2013 kl. 13:10

Mannbjörg varð upp úr hádegi þegar eldur kom upp í  8 metra löngum fiskibát 4 sjómílur SA af Arnarstapa. Einn skipverji var um borð og var honum bjargað um borð í nærliggjandi fiskibát. Björg, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Rifi var einnig kallað út og er það á leið á staðinn og aðstoðar ef þörf verður á.

Þyrla LHG var send ásamt slökkviliðsmönnum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á vettvang en fiskibáturinn logar stafna á milli og talið er að hann muni sökkva. Áætlað er að þyrlan flytji skipverjann til Reykjavíkur til læknisskoðunar á spítala en hann brenndist ekki en er hugsanlega með snert af reykeitrun.

Krummi1
Krummi3_bjorgun