Mannbjörg þegar fiskibátur sökk skammt vestur af Skálavík

  • _MG_0659

Mánudagur 12. ágúst 2013

Landhelgisgæslu Íslands barst um kl. 15:33 tilkynning frá fiskibátnum Björgu Jóns/7170 um að báturinn Glói / 7192 hafi sokkið um 1 sjómílu vestur af Skálavík. Einn maður var um borð og var honum bjargað um borð í Björgu Jóns. Einnig fór neyðarsendir bátsins í gang og sendi hann boð til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.  Björg Jóns sigldi með skipbrotsmanninn til Súgandafjarðar og annast lögreglan á Vestfjörðum skýrslutöku og rannsókn málsins.

Glói/7192 er 2 tonn að stærð og 6 metra langur trefjaplastbátur.

Mynd úr stjórnstöð Landhelgisgæslunnar - Árni Sæberg.