Þyrlan Syn verður útbúin nætursjónaukum

- við það eykst geta Landhelgisgæslunnar við eftirlit, leit og björgun

  • SYN

Föstudagur 11. október 2013

Syn, þyrla Landhelgisgæslunnar mun á næstu fara í reglubundna skoðun og endurbætur. Skoðunin er nokkuð umfangsmikil en auk þess verður þyrlan útbúin nætursjónaukabúnaði sem gerir hana hæfari til að gegna eftirliti, leit og björgun, eykur viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar og tryggir enn frekar öryggi almennings. Áætlað er að þyrlan verði fjarverandi framyfir áramót.


Nætursjónaukalýsing er í þyrlunum Líf og Gná. Mynd Árni Sæberg

Eins og komið hefur fram aðstoðar flugvélin Sif nú landamærastofnun Evrópusambandsins (EU), Frontex við landamæraeftirlit á Miðjarðarhafi. Upphaflega var áætlað að flugvélin yrði mánuð á svæðinu en landamærastofnunin hefur nú sent frá sér beiðni til aðildarríkja EU um að þau bjóði fram flugvél til þátttöku til áramóta. Landhelgisgæslan hefur boðið fram aðstoð Sifjar og mun á næstunni verða tekin ákvörðun um málið. Vandinn er gríðarlegur á þessu hafsvæði og flugvélin kemur að miklu gagni í þeirri neyð sem þarna ríkir.

Á meðan munu Líf og Gná sinna verkefnum flugdeildar Landhelgisgæslunnar. Gerðar hafa verið skipulagsbreytingar og aðrar ráðstafanir í rekstri flugdeildar til að mæta þessum frátöfum en taka verður tillit til aukins kostnaðar sem hefur fallið á flugdeildina vegna fjölgunar útkalla á árinu.


Mynd sem var tekin í sumar úr eftirlitsbúnaði Sifjar og sýnir bát með flóttamönnum á Miðjarðarhafi.


Mynd frá björgunaraðgerð varðskipsins Ægis í Miðjarðarhafi.

Landhelgisgæslan er með samning við danska sjóherinn sem er að jafnaði með Lynx þyrlur um borð í skipum sínum sem eiga viðdvöl hér við land. Hafa þær verið í viðbragðsstöðu fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar þegar upp koma lengri sjúkra eða björgunarflug.  Samstarf Landhgæslunnar og danska sjóhersins byggir á áratuga góðri samvinnu sem meðal annars felst í samæfingum, starfsmannaskiptum og samstarfi við leit og björgun í Norður Atlantshafi.


Lynx þyrla danska sjóhersins tekur eldsneyti frá varðskipinu Þór. Mynd Gassi.

Mynd af Syn er tekin af Magnúsi Traustasyni.