Þór kominn með Fernanda frá landi - næstu skref metin

Föstudagur 1. nóvember 2013

Varðskipið Þór er nú með flutningaskipið Fernanda í togi eftir að eldur blossaði aftur upp í skipinu nokkru eftir komuna til Hafnarfjarðar.  Þór er á góðri stefnu og siglir 10 mílur til að halda reyk sem mest frá landi og varðskipinu. 

Nú stendur yfir samráðsfundur í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar með fulltrúum Landhelgisgæslu, Samgöngustofu, Hafrannsóknarstofnunar og Umhverfisstofnunar þar sem verið er að endurmeta aftur stöðuna.  Flutningaskipið Fernanda er orðið umtalsvert laskað og því er gert ráð fyrir að finna stað sem fyrst til að koma skipinu á þar sem unnt er að halda slökkvistörfum áfram og láta þau efni sem þegar er kominn eldur í brenna upp, en um leið verja aðaltanka skipsins eins og kostur er en í skipinu eru um 100 tonn af olíu.

Myndir Jón Páll Ásgeirsson