Enginn eldur eða reykur sjáanlegur um borð í Fernöndu

Mánudagur 4. nóvember 2013

Í dag hefur áhöfn varðskipsins Þórs og slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kannað aðstæður um borð í flutningaskipinu Fernöndu og virðist enginn eldur eða reykur vera lengur til staðar.  Skipið er að kólna og mældist hiti í skipinu hvergi hærri en 40 gráður með hitamyndavél slökkviliðsins.

Ákveðið hefur verið að varðskipið Þór haldi með Fernöndu inn fyrir Garðskaga og leiti vars fyrir ríkjandi vindum. Verður staðan síðan að nýju metin í fyrramálið í samráði við Umhverfisstofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Hafrannsóknarstofnun, Samgöngustofu, hafnaryfirvöld Faxaflóahafna og Hafnarfjarðarhafnar, lögreglu, eigenda skipsins og tryggingafélag. 

Myndirnar tók Gassi ljósmyndari í dag úr þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar flogið var með búnað um borð í varðskipið Þór.