Varðskipið Þór siglir til aðstoðar Goðafossi

Mánudagur 11. nóvember 2013

Varðskipið Þór er nú farið úr höfn í Reykjavík og siglir á fullri ferð á staðinn.

Landhelgisgæslunni barst í nótt tilkynning frá flutningaskipinu Goðafossi um að eldur hefði komið upp í skorsteinshúsi skipsins og var unnið var að slökkvistörfum um borð. Skipið var staðsett um 70 sjómílur V – af Færeyjum á leið til Íslands. Þrettán manns eru í áhöfn skipsins auk þriggja farþega.

Skipið óskaði eftir aðstoð upp úr klukkan 05:00 og kallaði Landhelgisgæslan þá samstundis út þyrlur Landhelgisgæslunnar, flugvél og varðskip. Báðar þyrlurnar og flugvél Landhelgisgæslunnar fóru í loftið skömmu síðar. Varðskipið Þór er að leggja af stað áleiðis á vettvang.

Allar einingar Landhelgisgæslunnar hafa nú verið virkjaðar auk Samhæfingarstöðvar í Skógarhlíð en skipið er staðsett í íslenskri björgunarlögsögu og hefur Landhelgisgæslan verið í sambandi við björgunarmiðstöðina í Færeyjum og björgunarmiðstöð á N-Bretlandi vegna málsins.