Leki kom að skipi í Ísafjarðardjúpi - þyrlur Landhelgisgæslunnar sendar á staðinn

  • GNA2

Laugardagur 4. janúar 2013

Upp úr klukkan 14:00 óskaði línuskipið Þorlákur ÍS frá Bolungarvík eftir aðstoð þar sem leki var kominn að skipinu undir Grænuhlíð í Ísafjarðardjúpi. Landhelgisgæslan virkjaði samhæfingarstöð í Skógarhlíð og þyrlurnar TF-LÍF og TF-GNA voru kallaðar út. Einnig var Landhelgisgæslan í sambandi við björgunarsveitir á norðanverðum Vestfjörðum. 

Um borð í skipinu var fjórtán manna áhöfn. Dælur skipsins höfðu ekki undan og var því óskað eftir aðstoð. Sjór var kominn upp á miðja vél í vélarrúmi og skipið vélvana. Skipið er 160 tonn og 29 metrar að lengd.

Gunnar Friðriksson, björgunarskip Slysvarnafélagsins Landsbjargar og fiskiskipið Hálfdán Einarsson frá Bolungarvík komu fyrstir á staðinn með dælur og virtust þær hafa undan. Fiskikipið Fríða Dagmar frá Bolungarvík kom einnig með dælur og togarinn Páll Pálsson var sendur frá Ísafirði.

Sem fyrr segir voru þyrlur Landhelgisgæslunnar TF-LIF og TF-GNA báðar sendar á staðinn en þegar staðan var metin að nýju síðdegis var TF-LIF send til Reykjavíkur. TF-GNA bíður átekta á Ísafirði.

Páll Pálsson var kominn með Þorlák ÍS í tog kl. 17:00 og komu skipin til hafnar á Ísafirði um kl. 21:00.  Á svæðinu var NA hvassviðri en hægari vindur undir Grænuhlíð.

Fyrr í dag var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna bílveltu í Kaldadal en aðstoð hennar var afþökkuð þegar í ljós kom að meiðsli voru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Var þyrlunni þá snúið til aðstoðar í Ísafjarðardjúpi.