FGS BONN í langri reynslusiglingu - verður til sýnis við Skarfabakka

Miðvikudagur 29. janúar 2014

FGS BONN, birgða- og flutningaskip þýska flotans kom í morgun til Reykjavíkurhafnar en skipið mun liggja við Skarfabakka meðan á kurteisisheimsókn skipsins stendur. Skipið verður opið til sýnis föstudag og laugardag milli klukkan 13:00-16:00.

Við komuna til Reykjavíkurhafnar fór skipherra í kurteisisheimsóknir til Landhelgisgæslunnar, utanríkisráðuneytisins, lögreglustjórans í Reykjavík og Faxaflóahafna. Meðan skipið er við landið mun það verða við æfingar með Landhelgisgæslunni og björgunarþyrlum finnska flughersins sem auk þess taka þátt í æfingunni Iceland Air Meet 2014.

FGS BONN var smíðað á árunum 2009-2012 og afhent í september 2013 í  Wilhelmshaven. Reynslusiglingar skipsins hafa staðið yfir frá febrúar 2013 en prófanir þurfa að fara fram við  ólíkar veðurfarslegar aðstæður. Fyrsti hluti reynslusiglingarinnar fer fram á Norður Atlantshafi, er síðan siglt áfram til Karíbahafsins og Gíneuflóa áður en haldið verður tilbaka til Þýskalands í maí 2014. FGS BONN er nú að koma beint frá Wilhelmshaven en næstu hafnir eru áætlaðar Halifax í Kanada, New York í Bandaríkjunum, Santo Domingo í Dóminíkanska lýðveldinu, Lagos í Nígeríu, Cotonou í Benin, V - Afríku og Las Palmas á Kanaríeyjum.

Skipið er 20.000 tonn að stærð, 174 m að lengd og 24 m að breidd en það ristir 7.4 metra.  Um borð er aðstaða fyrir 237 manns þ.a.m. þyrluáhöfn og sjúklinga.

Mynd fengin 29.01.2014 af vefnum
http://www.naval-technology.com/projects/berlin-class-fleet-auxiliary-vessels/



FGS BONN við Skarfabakka. Mynd Jón Páll Ásgeirsson.