Sprengjusérfræðingar LHG eyddu tundurdufli á Melrakkasléttu

Sunnudagur 2. Febrúar 2013

Landhelgisgæslunni barst nýverið tilkynning um rannsóknadufl sem hafði borist á land á Norðausturlandi og var farinn leiðangur fyrir helgina þar sem sprengjusérfræðingar m.a. áætluðu að kanna duflið nánar. Fundu þeir þá óvænt breskt tundurdufl á Melrakkasléttu og var ákveðið í samráði við lögregluna á Þórshöfn að eyða duflinu. Í tundurduflinu var 100-150 kg. hleðsla og geta slík dufl verið stórhættuleg þrátt fyrir að hafa legið óhreyfð á áratugi.

Sjá myndskeið sem sýnir eyðinguna.