Fiskibátur í vandræðum úti fyrir Vestfjörðum

  • _MG_0632

Mánudagur 21. apríl 2014

Fiskibátur úti fyrir Vestfjörðum hafði samband við Landhelgisgæsluna kl. 18:27 í kvöld og óskaði eftir aðstoð vegna leka sem hafði komið upp í vélarrúmi. Tveir menn voru um borð.  Landhelgisgæslan hafði samband við nærstaddan bát og var hann beðinn um að halda til aðstoðar. Einnig voru björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á svæðinu kallaðar út ásamt björgunarbátnum Gunnari Friðrikssyni á Ísafirði og hraðskreiðum björgunarbát frá Suðureyri. Þyrla Landhelgisgæslunnar var auk þess kölluð út.

Klukkan kl. 18:55 hafði tekist að þurrlensa vélarrýmið og var þá hættuástandi aflýst. Nærstaddur bátur kom skömmu síðar til aðstoðar og dró fiskibátinn til hafnar. Voru þá allar björgunaraðgerðir afturkallaðar.