Samningur undirritaður um endurnýjun flugvita

Föstudagur 25. apríl 2014

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands og Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia undirrituðu þriðjudaginn 15. apríl samning um endurnýjun á VORTAC-flugvita Keflavíkurflugvallar. Flugvitinn er sambyggður stefnuviti fyrir borgaralegt flug (VOR) og herflug (TACAN) ásamt fjarlægðarmæli (DME) og stendur norðvestan við flugbrautamót Keflavíkurflugvallar. 

Flugvitinn var settur upp á sjötta áratug síðustu aldar en nú eru hættir að fást í hann varahlutir. Nýi búnaðurinn er keyptur af fyrirtækinu Thales í þýskalandi. og verður hann settur upp á nýjum stað á flugvellinum. Kostnaður við verkefnið er um 200 milljónir króna sem að mestu leyti verða greiddar af Alþjóðaflugmálastofnuninni og Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Verklok eru áætluð í lok þessa árs.

Verklok eru áætluð í árslok 2014.