Önnur björgun varðskipisins á innan við viku

Miðvikudagur 10. desember 2014

Áhöfn varðskipsins Týs bjargaði í gær 408 flóttamönnum af flutningaskipi sem var staðsett 165 sjómílur austur af Möltu. Neyðarboð bárust frá skipinu snemma í gærmorgun og var með aðstoð eftirlitsflugvéla mögulegt að staðsetja skipið. Var þá óskað var eftir aðstoð Týs sem var skammt frá og kom varðskipið á staðinn um kl.11:00.

Þegar komið var að flutningaskipinu fóru fjórir varðskipsmenn um borð til að kanna ástandið um borð og virtist ástand flóttafólksins vera þokkalegt. Þar sem engin áhöfn var til staðar á flutningaskipinu tóku varðskipsmenn yfir stjórn skipsins og settu stefnuna til lands ásamt Tý auk þess sem hlúð var að flóttafólkinu. Skömmu síðar stöðvaðist vél skipsins og var þá í samráði við ítölsk yfirvöld tekin ákvörðun um að flytja fólkið yfir í Tý og spænskt rannsóknarskip og þaðan til hafnar á Ítalíu. Um átta klukkustundir tók að ferja fólkið yfir í varðskipið og rannsóknarskipið með hraðbátum varðskipsins en því verki lauk seint í gærkvöldi. Skipin stefna nú til suður Ítalíu og er áætlað að þau komi til hafnar um miðjan dag.

Þetta er í annað skiptið á innan við viku sem áhöfn varðskipsins bjargar stórum hópi flóttafólks á Miðjarðarhafi en fyrir helgi tók áhöfnin þátt í björgun 390 manns af öðru flutningaskipi.