Týr enn að störfum norður af Líbýu

Varðskipið Týr, sem kallað var til af ítölskum yfirvöldum og Frontex í gær til að sigla til móts við gúmmíbát með hugsanlega flóttamenn um borð, 18 sjómílur norður af Líbýu er enn á svæðinu til eftirlits. Gúmmíbáturinn sem siglt var til móts við hefur ekki fundist en Týr er á svæðinu ásamt öðrum gæslueiningum frá Ítalíu og mun verða við störf á þessu svæði um sinn þar sem miklar annir eru á svæðinu.