Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann drenginn sem týndur hafði verið í hlíðum Heklu síðan fyrr um daginn

Klukkan 20.17 í gærkvöld barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni frá lögreglu um aðstoð þyrlu vegna 15 ára drengs sem týndur var á Heklu. Höfðu þá björgunarsveitir leitað piltsins síðan um eftirmiðdaginn en ekki fundið hann.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór í loftið rúmlega hálfníu í gærkvöld og tók áhöfnin með sér GSM leitarbúnað. Var leitað ítarlega í hlíðum fjallsins og um klukkan 22:50 fann svo áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar drenginn. Hafði hann kveikt á spjaldtölvu sinni og lét hana blikka þannig að dauft ljós sást í nætursjónaukum áhafnarinnar. Lenti þyrlan hjá drengnum og sigmaður þyrlunnar fór til hans og var hann heill á húfi. Drengurinn var fluttur um borð í þyrluna sem flaug með hann á Hellu þar sem fjölskylda hans tók á móti honum.