Mikill viðbúnaður vegna neyðarkalls í Eyjafirði

Um kl. 14:45 í dag heyrðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að kallað var í tvígang „MAYDAY, MAYDAY“ á rás 16, neyðar- og uppkallsrás skipa og báta. Kallið kom inn á móttökuloftnet sem staðsett er á Vaðlaheiði austan megin við Eyjafjörð. Starfsmenn Akureyrarhafnar höfðu samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og létu vita að þeir hefðu einnig heyrt kallið á rás 16 í talstöð sem staðsett er í hafnarskrifstofunni á Akureyri. Þar með var ljóst að kallið kæmi einhvers staðar frá í innan við 15 sjómílna fjarlægð frá Akureyri.  


Sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar við Eyjafjörð voru ræstar út sem og björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði. Áhafnir þyrlu og eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar voru einnig ræstar út og lögreglan á Norðurlandi-eystra beðin um að athuga hvort mögulegt væri að kallið hefði getað komið frá skipi eða bát í höfninni á Akureyri. Hríseyjarferjan Sævar var einnig beðin um að hefja skipulagða leit inn eftir Eyjafirðinum. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var einnig virkjuð með staðlaðri áhöfn fyrir leit og björgun á sjó.  

Um kl. 16:00 þegar björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar var lagt af stað frá Siglufirði, björgunarbátar komnir til leitar á Eyjafirði og þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar við það að fara í loftið frá Reykjavík, tilkynnti lögreglan á Norðurlandi-eystra að uppgötvast hefði að neyðarkallið hefði komið frá erlendu skipi í höfninni og hafði maður sem átti erindi um borð viðurkennt að hafa sent það út. Leitar- og björgunareiningar voru því afturkallaðar og frekari aðgerðum hætt.