Nýtt sjókort af Reyðarfirði komið út
Mjóeyrarhöfn komin á kortið
Út er komið nýtt sjókort af Reyðarfirði. Kortið er nr. 716 og inn á því er hin nýja höfn Fjarðaráls við Mjóeyri. Kort þetta kemur í stað eldra korts af innsta hluta Reyðarfjarðar sem var með saman númer og í sama mælikvarða. Kortið er í fullri sjókortastærð (72x102 cm), mælikvarðinn 1:10 000, viðmiðun er WGS-84 og mörk kortsins: 65°00'00"n - 65°03'30"n, 14°02'00"v - 14°14'00"v.
Á sama tíma kom út ný útgáfa af sjókorti nr. 363 sem er af höfnunum í Hafnarfirði og Straumsvík.
Jafnframt komu út nýar útgáfur af kortunum af Akureyri og Norðfirði.
Eldri útgáfur af þessum kortum eru þar með fallnar úr gildi.
Hilmar Helgason
framkvæmdastjóri sjómælingasviðs LHG.