Æfa björgun úr þyrlu í vatni
HUET þjálfun í Rotterdam
11.1.2024 Kl: 15:02
Allar þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar verða að gangast með reglulegu millibili undir svokallaða HUET-þjálfun og á það jafnt við um flugmenn, sigmenn, spilmenn og lækna. Markmiðið er að allir um borð séu undir það búnir að geta komist úr þyrlu sem þarf að lenda í sjó eða á vatni.
Þjálfun er bæði bókleg og verkleg. Í verklega þættinum kemur áhöfnin sér fyrir í þyrlulíkani sem er síðan slakað niður í sundlaug. Fyrst er þetta gert rólega, svo er hraðinn aukinn, því næst er líkaninu velt og að endingu er æfingin gerð í svarta myrkri.
Allt er þetta gert til að líkja eftir sem raunverulegustum aðstæðum.
Í vikunni hafa þessar æfingar farið fram í Rotterdam í Hollandi.