Æft með dönsku og færeysku varðskipi

Æfingar fóru fram suðvestur af Færeyjum.

  • IMG_0989_1693491603619

1.9.2023 Kl: 9:45

Áhöfnin á varðskipinu Freyju æfði leitar- og björgunaraðgerðir með áhöfn danska varðskipsins Hvidbjornen og færeyska varðskipsins Brimil, suðvestur af Færeyjum í vikunni. Æfingin hófst á reykköfunaræfingum um borð í færeyska skipinu sem gekk út á að finna þrjá menn sem voru týndir.

 
Tvö teymi reykkafara voru send frá Freyju um borð í Brimil og vel gekk að leysa þau verkefni sem fyrir áhöfnina voru lögð.

 
Síðar um daginn var blásið til björgunaræfingar þar sem æft var við Hestey, Koltur og suður á Guttagrunn með áhöfn Hvítabjörnsins. Þar voru viðbrögð æfð við strandi skips sem síðar sökk við norðanverða eyjuna Koltur. Áhafnir varðskipanna þurftu að finna fjóra ,,skipverja“ sem fallið höfðu í sjóinn. Leitarsvæðið var umfangsmikið og var reiknað út af björgunarmiðstöðinni í Þórshöfn.

 
Samæfing sem þessi er reglulega haldin og er sérlega mikilvæg til að samhæfa viðbrögð danska sjóhersins, færeysku strandgæslunnar og Landhelgisgæslunnar.

 
Æfingin gekk afar vel og fer í reynslubanka allra sem að komu.


Myndir: Guðmundur St. Valdimarsson.
IMG_E5555Friðrik Höskuldsson, skipherra, um borð í Freyju.