Áhöfnin á Baldri sótti göngufólk í Veiðileysufjörð

Fólkið var afar þakklátt fyrir aðstoðina og viðtökurnar um borð.

  • IMG_7235-1-Large-

17.9.2020 Kl: 11:41

Þrátt fyrir að áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri sé að stærstum hluta bundin við sjómælingar að sumri og hausti kemur það fyrir að áhöfnin sinni útköllum á sviði leitar og björgunar. Áhöfnin er þjálfuð til slíkra verka og Baldur vel búinn til björgunarstarfa.

Ádögunum barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um að sækja þyrfti göngufólk inn á Veiðileysufjörð. Skipið var á landleið til Ísafjarðar eftir nokkurra daga mælingar í Jökulfjörður og var statt út af Grunnavík. Farþegabátur sem átti að sækja fólkið sóttist ferðin seint yfir djúpið enda norðaustan 15 m/s og kröpp alda. Um var að ræða erlent par, reynt útivistarfólk og vel búið, sem var á göngu á Hornströndum.

Þau höfðu m.a. fengið að láni talstöð svo unnt var að vera í sambandi við þau þegar áhöfnin nálgaðist. Léttbátur var sendur eftir fólkinu sem leitaði skjóls í tjaldi á meðan.

Þrátt fyrir hvassviðri gekk vel að ferja þau um borð í Baldur. Farið var með fólkið til Ísafjarðar og á leiðinni þangað var mjög hvasst í djúpinu og lá vindur í norðaustan 20 m/s og fór upp í 30 m/s í hviðum. Fólkið var afar þakklátt fyrir aðstoðina og viðtökurnar um borð.

IMG_7231-1-Large-Léttbátur Baldurs ferjaði fólkið um borð.IMG_7206-1-Large-Fólkið var vant og vel búið.IMG_7192-1-Large-Stubbur, léttbátur Baldurs, sjósettur.IMG_7235-1-Large-Fólkið var afar þakklátt fyrir aðstoðina.IMG_7213-1-Large-Fólkið var sótt í Veiðileysufjörð.Baldur-vid-maelingar-i-BreidafirdiBaldur við mælingar í Breiðafirði.