Annríki í stjórnstöð árið 2023

Varðstjórar í stjórnstöð hafa í nægu að snúast.

  • Image00009_1704193726816

2.1.2024 Kl: 11:08

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafa í nægu að snúast á vaktinni. Árið 2023 voru 58214 mál á hendi stjórnstöðvarinnar vegna lögbundinna verkefna á sviði leitar, björgunar, eftirlits og löggæslu.
Langflest málin eða 33449 voru vegna skipa eða báta sem dottið höfðu úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu.
Brottfall skipa úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu krefst eftirfylgni og upplýsingaöflunar stjórnstöðvar innan 30 mínútna til að skera úr um hvort áhafnir eru í hættu. Sem betur fer er slíkt sjaldgæft en málin krefjast engu að síður inngripa að hálfu varðstjóranna.
Image00003_1704193726765Úr stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. 
Image00005_1704193726571Úr stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.
Image00006_1704193726566