Borgarísinn hefur brotnað og getur reynst hættulegur

Hefur brotnað í að minnsta kosti sex hluta og er ekki lengur landfastur.

  • 20180926_085628

1.10.2018 Kl: 14:50

Borgarísjakinn við Hrólfssker í mynni Eyjafjarðar hefur molnað í að minnsta kosti sex hluta og er ekki lengur landfastur. Ísinn getur því reynst hættulegur skipum og bátum á svæðinu. Skipverji sem staddur var í grennd við borgarísjakann hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar á öðrum tímanum í dag og tilkynnti um þær breytingar sem orðið höfðu á ísjakanum. Í kjölfarið sendi Landhelgisgæslan frá sér viðvörun til sjófarenda á svæðinu og eru þeir hvattir til að fara með gát.