Flutningaskip tók niðri við Akurey

Séraðgerða- og þyrlusveit kallaðar út til að kanna mengun.

  • 20230910_160646

10.9.2023 Kl: 17:03

Erlent flutningaskip tók niðri við Akurey um klukkan þrjú í dag þegar skipið var á leið frá Reykjavík. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar gert viðvart. 


Grunur lék á að mengun kæmi frá skipinu og var séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar á varðbátnum Óðni kölluð út til að kanna aðstæður. Þá var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út til að kanna aðstæður úr lofti.

 
Athugunin leiddi í ljós að þunn olíubrák reyndist vera á svæðinu og var ákveðið að flutningaskipið héldi til hafnar í Reykjavík þar sem mengunarvarnargirðing verður sett umhverfis skipið. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mun draga olíuvarnargirðinguna umhverfis flutningaskipið ásamt séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar.


Umhverfisstofnun hefur verið gert viðvart og rannsókn á tildrögum atviksins er í höndum rannsóknarnefndar samgönguslysa.


20230910_160734Óðinn á siglingu. 
20230910_160116Úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. 
20230910_160646Flutningaskipið.