Fóðurprammi sökk í Reyðarfirði

Áhöfnin á varðskipinu Þór kölluð út. Vonskuveður á svæðinu.

  • Fodurprammi

9.1.2021 Kl: 22:56

Áhöfnin á varðskipinu Þór var kölluð út á níunda tímanum í kvöld þegar mikill leki kom að stórum fóðurpramma sem þjónar fiskeldiskvíum í Reyðarfirði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust upplýsingar starfsmönnum fiskeldisfyrirtækisins í firðinum um að pramminn væri að sökkva og þegar í stað var haft samband við áhöfnina á Þór sem var kölluð út til aðstoðar. Svo vildi einmitt til að varðskipið var statt í firðinum. Áhöfn á Þór gat af þeim sökum brugðist afar hratt við beiðninni.

Vonskuveður er á svæðinu og aðstæður afar krefjandi. Varðskipsmennirnir sjósettu léttbát Þórs og höfðu öflugar sjódælur meðferðis. Þegar áhöfnin á Þór kom á staðinn var ekkert hægt að gera. Pramminn var þá orðinn fullur af sjó og marar nú í kafi. Von er á þjónustuaðilum í fyrramálið til hefja undirbúning þess að koma prammanum aftur á flot. 

Talið er að olía sé um borð og hefur Umhverfisstofnun, Samgöngustofu og fleiri viðeigandi aðilum verið gert viðvart. Varðskipið Þór verður jafnframt til taks á Reyðarfirði ef á þarf að halda.

Meðfylgjandi myndband sýnir þegar áhöfnin á Þór kom til baka um borð í varðskipið í kvöld.

Fóðurprammi sökk