Kafað í reyk á Hólmavík

Áhöfnin á varðskipinu Þór hélt reykköfunaræfingu á dögunum.

  • 1_1617017319801

29.3.2021 Kl: 11:20

Eins og gefur að skilja gegna æfingar veigamiklu hlutverki í störfum varðskipsáhafna Landhelgisgæslu Íslands. Ein slík fór fram í síðustu viku þegar þegar reykköfunaræfing var haldin um borð í Fönix ST-177 á Hólmavík. 

Æfingar sem þessar gegna mikilvægu hlutverki svo áhafnir Landhelgisgæslunnar geti brugðist örugglega við ef eldur kemur upp um borð í skipum á Íslandsmiðum. 

Meðfylgjandi myndband sem Sævar Már Magnússon, bátsmaður á Þór, útbjó sýnir hvernig æfing sem þessi fer fram.

Reykköfunaræfing

3_1617017319840Að lokinni vel heppnaðri æfingu.

4_1617017319807Eiríkur Bragason, yfirstýrimaður á varðskipinu Þór.