Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu við ströndina vegna slæmrar veðurspár

Landhelgisgæsla Íslands vekur athygli á að stormspár eru í gildi á 16 af 17 spásvæðum Veðurstofunnar á hafinu umhverfis landið en gert er ráð fyrir mjög hvassri suðvestanátt á morgun og fram á föstudag.

  • Wave025_djup_swh_mwp_mwd_2020110400_042

4.11.2020 Kl: 19:20

Landhelgisgæsla Íslands vekur athygli á að stormspár eru í gildi á 16 af 17 spásvæðum Veðurstofunnar á hafinu umhverfis landið en gert er ráð fyrir mjög hvassri suðvestanátt á morgun og fram á föstudag. Á sama tíma gera ölduspár ráð fyrir mikilli ölduhæð sunnan- og vestanlands.

Stórstreymt var síðastliðinn mánudag og er sjávarstaða enn nokkuð há, en gera má ráð fyrir að þessi mikla ölduhæð geti hækkað sjávarstöðu enn frekar vegna áhlaðanda. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við ströndina, bæði í höfnum en ekki síður þar sem sjór getur gengið á land.

Wave025_djup_swh_mwp_mwd_2020110400_042

Ölduspárkort fengið úr brunni Veðurstofunnar og gildir það klukkan 18.00 á morgun.