Lóa bangsi tók þátt í eftirliti þyrlusveitar

Bangsinn var hluti af áhöfn þyrlusveitar í gær.

  • 422590712_907167624056837_8789580072497308534_n

26.1.2024 Kl: 13:57

Sex ára dóttir eins þyrluflugstjórans okkar stóð frammi fyrir erfiðu vali í gær. 

Í skólanum var bangsastund og hún þurfti að velja á milli bangsanna Manna og Lóu um hvort þeirra fengi að fara með henni. Hún gat ómögulega gert upp á milli þeirra . 

Úr varð að Manni fór með henni í skólann og Lóa með pabba hennar í þyrluna. 

Lóa aðstoðaði við eftirlit um landið og miðin og fékk að fylgjast með ansi viðburðaríkum degi um borð í þyrlunni.

420726800_708709058058858_3059784670881708146_nHaukur Harðarsson, flugmaður, Lóa og Þórarinn Ingi Ingason, flugstjóri. 

419862989_396084316331214_2128128582313189896_nLóa fylgist með. 

422538749_727863942651096_3071951086654894509_nÞórarinn Ingi Ingason og Lóa. 

419466123_371173892215442_3193792589359201664_nLóa fór með í vinnuna.