Mengunarvarnargirðingu komið fyrir

Áhöfnin á Freyju kom mengunarvarnargirðingu fyrir umhverfis skipið

  • DJI_0069

19.4.2023 Kl: 11:02

Áhöfnin á varðskipinu Freyju kom mengunarvarnargirðingu fyrir umhverfis flutningaskipið Wilson Skaw í morgun. Engin merki eru um olíuleka frá skipinu en búnaðinum er komið fyrir til að gæti fyllsta öryggis. Kafarar Landhelgisgæslunnar köfuðu að skipinu í gær.

 
Þar sást að skipið situr fast á um 50 metra kafla og ljóst að það verður ekki fært af strandstað fyrr en í fyrsta lagi eftir einhverja daga. Útgerð skipsins útbýr núna björgunaráætlun eins og lög kveða á um en áhöfnin á Freyju er til taks á svæðinu til að grípa inn í ef þörf krefur. Veður á svæðinu er gott.


Útlit er fyrir að létta þurfi skipið áður en ráðist verði í björgun þess. Um borð í skipinu eru tæplega 2000 tonn af salti og 195 tonn af olíu.

 
Meðfylgjandi eru myndir sem Guðmundur St. Valdimarsson tók í morgun þegar mengunarvarnargirðingin var dregin út.

Freyja á strandstað


DJI_0082Varðskipið Freyja á vettvangi. 
DJI_0059-2-Mengunarvarnarbúnaðinum komið fyrir umhverfis skipið.
DJI_0069Frá aðgerðum í morgun.