Óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna óhappa í grennd við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi

  • GNA3_BaldurSveins

Laugardagur 3. apríl 2010

Landhelgisgæslunni barst kl.20:46 beiðni frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra um þyrlu vegna ökklabrotins manns í Þórsmörk, nánar tiltekið í Strákagili. Læknir á staðnum mat það ógerlegt að flytja manninn nema með þyrlu. Var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út kl. 20:49.

TF-GNA fór frá Reykjavík kl.21:27 og var komin á slysstað kl. 22:00. Barst þá önnur beiðni um þyrlu vegna konu sem var sködduð á fæti á Fimmvörðuhálsi. Við könnun á aðstæðum reyndist ekki unnt að hífa hin slösuðu um borð í þyrluna, nauðsynlegt var að færa þau á staði þar sem hægt væri að taka á móti þyrlunni. TF-GNA lenti í Þórsmörk og beið á meðan flutningur fór fram. Fór þyrlan að nýju í loftið kl. 23:15 og sótti þann slasaða úr Strákagili og flutti hann til Reykjavíkur. Lent var við skýli Landhelgisgæslunnar kl. 00:40 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti hinn slasaða á sjúkrahús. Var þá enn unnið að björgun konunnar á Fimmvörðuhálsi.

TF-LIF fór í loftið Kl 02:22 með 5 undanfara frá Landsbjörgu. Lent var í Básum og undanfarar settir út, haldið síðan upp á Fimmvörðuháls og lent. Þar biðu björgunarsveitamenn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar með konuna og var hún flutt um borð, haldið síðan að Básum og 4 undanfarar teknir aftur um borð, haldið til Reykjavíkur. Lent var kl. 03:50 þar sem sjúkrabíll beið og flutti konuna á slysadeild.

Veður var NA 5-30hn og smáél. Hefur nú þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út þrisvar sinnum á vegna óhappa í námunda við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi. Á fimmtudagsvöld var þyrlan kölluð út vegna manns sem sleit vöðva á fæti. Var hann ekki alvarlega slasaður, en þótti rétt að flytja hann til byggða með þyrlu. Var beiðnin um þyrlu Landhelgisgæslunnar afturkölluð þar sem önnur þyrla á svæðinu, sem hefur flutt ferðamenn að gosstöðvunum, var fengin til að flytja manninn.

Mynd Baldur Sveinssn