Gefið út nýtt frímerki með mynd af TF-LIF við björgunarstörf

  • Bjorgun

Fimmtudagur 22. mars 2012

Í dag kom út hjá Íslandspósti nýtt frímerki með mynd af þyrlunni TF-LIF við björgun sextán manna áhafnar fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 þann 9. mars 2004. Þema Norðurlandafrímerkjanna 2012 er leitar-og björgunarþjónusta og er frímerkið gefið út af því tilefni. Á heimasíðu Íslandspósts, www.postur.is segir að við gerð frímerkisins hafi verið stuðst við verðlaunaljósmynd Jónasar Erlendsson fréttaritara.

Þar segir einnig: Þema Norðurlandafrímerkjanna 2012 er leitar-og björgunarþjónusta. Öldum saman hafa íslenskir sjómenn lifað með hættunni á sjónum og margir týnt lífi í harðri baráttu við öfl náttúrunnar. Landhelgisgæsla Íslands og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa nána samvinnu um björgunaðgerðir þegar háski steðjar að fólki á sjó eða landi. Fagmennska íslenskra björgunarsveita hefur vakið athygli um heim allan. Landhelgisgæslan gegnir lykilhlutverki við björgun á sjó. Þar eru þyrlurnar öflugar ásamt skipum og flugvélum gæslunnar.

Á frímerkinu er þess minnst þegar TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, bjargaði sextán manna áhöfn fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 þann 9. mars 2004. Skipið strandaði í Skarðsfjöru á Suðurlandi eftir að það fékk nótina í skrúfuna við loðnuveiðar skammt undan landi. Björgunar sveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar aðstoðuðu við björgunina frá landi.