Æfingin Northern Challenge stendur yfir

  • NC2012_W1D3_Doug_Elsey_Photo_093

Miðvikudagur 2. október 2012

Landhelgisgæslan stendur um þessar mundir fyrir fjölþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga sem kallast Northern Challenge. Æfingin fer fram á Keflavíkurflugvelli og á fyrrum varnarsvæðum utan hans, í höfninni í Helguvík, Patterson svæðinu og í Hvalfirði. Að þessu sinni taka tíu þjóðir með um tvö hundruð liðsmenn þátt í æfingunni en þær eru auk Íslands: Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Holland, Belgía, Frakkland, Austurríki og Bandaríkin. Æfingin er haldin hér á landi í tólfta sinn en auk Landhelgisgæslunnar koma aðildarþjóðir NATO einnig að skipulagningu og framkvæmd æfingarinnar.

Tilgangur Northern Challenge er að æfa viðbrögð við hryðjuverkatilfellum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar búnaður og fundist hefur víðsvegar um heim og aðstæður hafðar eins raunverulegar og hægt er. Einnig er rannsóknarþátturinn tekinn fyrir þar sem ákveðin teymi hafa einungis þann tilgang að rannsaka vettvang og fara yfir sönnunargögn.

Reynslan frá æfingum þessum hefur gert starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kleift að fara utan sem friðargæsluliðar til að taka þátt í mannúðarstarfi sem unnið hefur verið í Líbanon og Írak. Þar hefur starf sprengjusérfræðinga falist í að hreinsa  sprengjur af átakasvæðum og er það mikilvægur þáttur í uppbyggingarstarfi því sem fer fram til að skapa friðvænleg skilyrði til framtíðar. Víða er mikið starf óunnið. Talið er að 90% þeirra sem látast af völdum sprengja á átakasvæðum séu börn. Mjög mikilvægt er að þjóðir sameinist í hreinsun svæðanna en slík hreinsun er eðli málsins samkvæmt hættuleg og mikilvægt er að rétt sé að verki staðið.

Margir aðrir aðilar frá Landhelgisgæslunni sem og öðrum íslenskum stofnunum koma að framkvæmdinni, má þar nefna þyrludeild, köfunardeild, varðskipadeild, Ríkislögreglustjóra, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.

Frétt um æfinguna á vef NATO

Mynd fyrir ofan © Doug Elsey.

ThorgBaldurss
Áhöfn TF GNA tók þátt í æfingunni.Mynd © Þorgeir Baldursson.

Tyr_thorgeirB
Varðskipið Týr í Helguvík. Mynd © Þorgeir Baldursson.

NC2012_W1D2_Doug_Elsey_Photo_319
Leitað að sprengju í höfninni. Mynd © Doug Elsey.

NC2012_W1D3_Doug_Elsey_Photo_252_fhdr
Ýmsar tegundir af "róbotum" eru notaðir á æfingunni. Mynd © Doug Elsey.

NC2012_W1D3_Doug_Elsey_Photo_034_fhdr
Aðstæður á svæðinu henta sérstaklega vel fyrir æfinguna. Mynd © Doug Elsey.

NC2012_W1D3_Doug_Elsey_Photo_282

Skipulagning leitar. Mynd © Doug Elsey.