Sendinefnd frá Atlantshafsbandalaginu í heimsókn hjá sprengjudeild Landhelgisgæslunnar
Mánudagur 28. febrúar 2005.
Nýlega heimsóttu þrír embættismenn frá Atlantshafsbandalaginu sprengjudeild Landhelgisgæslunnar. Utanríkisráðuneytið skipulagði heimsóknina. Gestirnir hittu starfsfólk sprengjudeildar og fengu upplýsingar um starfsemi deildarinnar á Íslandi og í Írak á vegum Friðargæslunnar. Einnig var fjallað um möguleika á áframhaldandi starfi sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar fyrir Friðargæsluliðið.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður: Adrian King sprengjusérfræðingur sýnir embættismönnunum tæki og tól sprengjudeildarinnar.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður: Starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar og gestirnir frá NATO. Vélmennið sem sérhannað er til sprengjueyðingar í forgrunni.