Sótt með þyrlu eftir bílveltu á Hrútafjarðarhálsi
Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 15:34. Konan var flutt með sjúkrabíl á móti þyrlunni og var ákveðið að TF-LIF kæmi til móts við hann á Holtavörðuheiði því að veðrið þar var nokkuð skárra en annars staðar á leiðinni. Þyrlan lenti á Holtavörðuheiði kl. 16 og kom til Reykjavíkur með konuna kl. 16:50. Hún var flutt á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.
fjölmiðlaftr.