Fundur um öryggismál sjómanna haldinn í Reykjavík

Mánudagur 1. desember 2003.

Eins og fram hefur komið á vefsíðu Landhelgisgæslunnar hafa nokkrar stofnanir, ráðuneyti og félög staðið fyrir málfundum um öryggismál sjómanna víða um land á þessu ári í tengslum við langtímaáætlun í öryggismálum sjómanna.  Fyrsti fundurinn var haldinn í Grindavík 31. mars.

Næsti fundur verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík fimmtudaginn 4. desember nk. kl. 15:00.  Fundarstjóri verður Friðrik Jón Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ.  Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig varða öryggismál sjómanna eru hvattir til að mæta á fundinn.

Sigurður Steinar Ketilsson yfirmaður gæsluframkvæmda flytur erindi fyrir hönd Landhelgisgæslunnar um framtíðarsýn stofnunarinnar varðandi fyrirkomulag leitar- og björgunarþjónustu við sjófarendur.

Sjá dagskrá fundarins.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.