Varðskip dró Síldey NS-25 til hafnar
Þriðjudagur 28. október 2003.
Skipstjóri Síldeyjar NS-25 hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð þar sem skipið var vélarvana eftir að hafa fengið veiðarfæri í skrúfuna. Það var þá statt 60 sjómílur norðaustur af Dalatanga. Varðskip hélt þá í átt til skipsins og var komið að því um tvöleytið í gærdag. Skipin komu til hafnar á þriðja tímanum í nótt. Nokkuð hvasst var á leiðinni en vel gekk að draga skipið til hafnar.
Síldey er 250 tonna línuskip með heimahöfn á Seyðisfirði. Sjá meðfylgjandi mynd sem
upplýsingafulltrúi