Kafarar Landhelgisgæslunnar hreinsuðu veiðarfærin úr skrúfu Hrafns GK-111
Laugardagur 22. febrúar 2003.
Er varðskip hafði dregið Hrafn GK-111 til Hafnarfjarðar í gær, var hafist handa við að hreinsa veiðarfærin úr skrúfunni. Sex kafarar Landhelgisgæslunnar unnu frá kl. 16:12 í gær til kl. 5:37 í morgun, eða í rúmlega 13 klst., við að hreinsa skrúfuna.
Hrafn hafði misst botnvörpuna og þegar reynt var að slæða hana upp, skaut henni undir skipið og festist hún þá í skrúfunni. Hrafn hélt til veiða að nýju fljótlega eftir að kafarar höfðu lokið störfum.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson stýrim. á v/s TÝ. Á myndinni eru Baldur Árnason háseti á TÝ og Friðrik Friðriksson varðstjóri í stjórnstöð en báðir starfa einnig sem kafarar hjá LHG.