Kafarar Landhelgisgæslunnar fundu líkamsleifar í Reykjavíkurhöfn
Mánudagur 26. ágúst 2002.
Kafarar Landhelgisgæslunnar fengu það verkefni að leita að sprengjum í Reykjavíkurhöfn vegna komu bandarísku flotadeildarinnar um síðustu helgi. Var það gert í samstarfi við lögregluna í Reykjavík. Engar sprengjur voru sjáanlegar eins og við var að búast en hins vegar fundu kafarar Landhelgisgæslunnar líkamspart af manni á sjávarbotni innan hafnarinnar. Lögreglan rannsakar nú málið.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands