Olíumengun frá fiskiskipi reyndist vera sprungið hvalshræ

Þetta óvenjulega mál sýnir að fjareftirlit sem þetta er langt á veg komið.

  • Beitir-med-hvalshraeid-a-perunni-2

16.9.2022 Kl: 10:31

Nýverið barst Landhelgisgæslunni gervitunglamynd frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA, sem gaf til kynna að olía væri að koma frá fjölveiðiskipinu Beiti TFES sem var að veiðum djúpt austur af landinu. Landhelgisgæslan fær gervitunglamyndir reglulega sendar til að greina mengun og skipaumferð í efnahagslögsögunni.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði samband við áhöfn Beitis sem kannaðist ekki við að olíu hafi verið dælt í sjó og hafði engar skýringar á hvers vegna kerfin sýndu að mengun væri að koma frá skipinu.

Það var svo ekki fyrr en fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson kom að Beiti sem uppgötvaðist að Beitir var með sprungið hvalshræ sem sat fast á perustefni skipsins. Enginn um borð hafði hugmynd um veru hvalsins á perunni en úr hræinu lak lýsi sem skyldi eftir sig brák.

Þar með var ráðgátan leyst og laumufarþeginn á perunni var því eftir allt saman ástæða þess að viðvaranir bárust Landhelgisgæslunni. Þetta óvenjulega mál sýnir að fjareftirlit sem þetta er langt á veg komið og er sérlega mikilvægt til að hægt sé að halda uppi virku eftirliti í efnahagslögsögu Íslands.

Beitir-med-hvalshraeid-a-perunni-2

Ljósmynd: Birkir Hreinsson

Gervitunglamynd

Skýring með mynd: Gervitunglamynd af rákinni auk vinnumyndar sem Siglingaöryggisstofnun Evrópu vinnur út frá þeim og sendir Landhelgisgæslunni. Rákin endar þegar hvalurinn hefur fallið af perustefninu.

MengunarmyndSkipið var á siglingu djúpt austur af landinu.