Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna vélarvana báts við Ingólfsgrunn

Strandveiðibátur í grenndinni kom til aðstoðar.

  • TF-GRO

6.8.2020 Kl: 15:23

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á þriðja tímanum í dag vegna vélarvana strandveiðibáts sem rak að skeri við Ingólfsgrunn á Húnaflóa. Þyrlan var á flugi við Snæfellsnes þegar útkallið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Annar strandveiðibátur í grenndinni var einnig beðinn um að halda á staðinn til aðstoðar. Einn var um borð í bátnum og tókst honum að setja akkeri bátsins út sem kom í veg fyrir að báturinn steytti á skerinu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í þrjú. Þyrlan var til taks á meðan báturinn var tekinn í tog af strandveiðibátnum sem kom til aðstoðar. Vel gekk að koma línu á milli bátanna en þeir halda á Drangsnes.

Þetta var í annað sinn í dag sem þyrlusveit Landhelgisgæslunnar er kölluð út en skömmu fyrir hádegi var óskað eftir þyrlu vegna manns í sjónum við Álftanes. Maðurinn fannst um það leyti sem þyrlan var að hefja sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli.