Týr kominn á þurrt

Reglubundið viðhald fer fram á varðskipinu Tý í slippnum í Reykjavík.

  • TYR-slipp

11.2.2021 Kl: 16:30

Varðskipið Týr er nú komið á þurrt. Í vikunni var skipið tekið í slipp í Reykjavík þar sem fram fara viðgerðir á skrúfubúnaði og hitakerfi skipsins. Eflaust hafa einhverjir vegfarendur í miðborginni orðið varir við skipið sem stendur tignarlegt við Mýrargötu. Varðskipið Týr var smíðað í Árósum árið 1975 og ber aldurinn nokkuð vel.

TYR-i-slippTýr er kominn á þurrt í Reykjavík. Viðhaldsvinna stendur yfir.TYR2_1613061013143Varðskipið Týr var smíðað í Árósum árið 1975. TYR3_1613061013129Skipið ber aldurinn vel.