Varðskip til Hafnar í Hornafirði í fyrsta sinn

Varðskipið Þór kom til Hafnar í Hornafirði í morgun.

  • Thor-a-hofn

15.9.2023 Kl: 15:58

Varðskipið Þór lagðist að bryggju á Höfn í Hornafirði í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem varðskip Landhelgisgæslunnar kemur til Hafnar. 

 Af því tilefni langar áhöfninni á varðskipinu að bjóða íbúum bæjarins að skoða varðskipið milli klukkan 13 og 15 á morgun, laugardag. Páll Geirdal, skipherra, og áhöfn hans tekur vel á móti gestum. 

 Á meðfylgjandi myndbandi má sjá varðskipið þegar varðskipið kom til Hafnar í morgun og það er viðeigandi að leyfa klassískum tónum Hauks Morthens að óma undir.  

Varðskipið Þór siglir inn til Hafnar í Hornafirði

Thor-a-hofn-1Varðskipið Þór kom að bryggju á Höfn í Hornafirði í fyrsta sinn í dag. 

Thor-siglir-inn-til-HafnarVarðskipið siglir inn. 

Vardskipid-ThorVarðskipið Þór.