Viðbúnaður vegna gruns um mengun

Viðvörun barst Landhelgisgæslunni vegna gruns um mengun.

  • Flekkur

14.12.2021 Kl: 14:47

Landhelgisgæslan stöðvaði för erlends flutningaskips sem var á leið til hafnar í Reykjavík í gærmorgun í kjölfar þess að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst viðvörun frá EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu, sem gaf til kynna að mengun kynni að stafa frá skipinu. Viðvörunin var byggð á gervitunglamynd. Hún var þess eðlis að mikilvægt þótti að ganga úr skugga um að skipið væri ekki enn að gefa frá sér mengun áður en að það kæmi of nálægt landi þannig að olíumengaður sjór bærist ekki í fjörur. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem og séraðgerðasveit LHG á varðbátnum Óðni. Þá var Umhverfisstofnun og Samgöngustofu gert viðvart eins og áætlanir um bráðamengun gera ráð fyrir.

Áhöfn varðbátsins Óðins, ásamt sérfræðingi Umhverfisstofnunar, gengu úr skugga um að enginn olíuleki væri sjáanlegur frá skipinu. Að því búnu var skipinu heimilt að halda til hafnar þar sem hafnarríkiseftirlit Samgöngustofu tók á móti því til nánari skoðunar. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kom auga á olíuflekki á siglingaleið skipsins, norður og vestur af Garðskaga, og var varðbáturinn Óðinn sendur til þess að taka sýni úr sjónum. Sýnin verða send til frekari greiningar erlendis á vegum Umhverfisstofnunar.

Landhelgisgæslan fær nær daglega sendar gervitunglamyndir af hafsvæðinu í kringum Ísland sem nema hugsanlega mengun í hafi. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar gera athugun á því hvort um raunverulega mengun eða önnur náttúrleg fyrirbæri er að ræða, svo sem nýfrosinn sjó eða þörungablóma. Þess má geta að gervitunglamyndin sem barst í gær var tekin í um 700 kílómetra hæð og mengunarflekkurinn sem gervitunglið nam stemmdi við siglingaleið umrædds skips.

Málið er nú í höndum Umhverfisstofnunar og Samgöngustofu.

Viðbúnaður vegna gruns um mengun

Capture_1639493322423Gervitunglamyndin sem Landhelgisgæslan fékk frá EMSA.

FlekkurFlekkurinn sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sá.