Viðbragðsgeta TF-LÍF var 92 prósent árið 2008
Flugtæknideild Landhelgisgæslunnar hefur gefið út skýrslu yfir viðbragðsgetu “availability” flugflota LHG á árinu 2008 og eru niðurstöðurnar eftirfarandi:
Viðbragðsgeta véla Flugdeildar Landhelgisgæslu Íslands árið 2008 |
|||||
Vél |
Viðbragðs-geta |
Skoðanir (dagar) |
Bilanir (dagar) |
Bið eftir varahlutum (dagar) |
Athugasemdir |
TF-LIF |
92% |
25 |
1 |
3 |
1 stór skoðun á árinu |
TF-GNA |
64% |
123 |
6 |
2 |
2 stórar skoðanir á árinu |
TF-EIR |
67% |
87 |
14 |
20 |
|
TF-SYN |
69% |
84 |
1 |
26 |
2 stórar skoðanir á árinu + 2 mótorviðgerðir |
TF-OBX |
93% |
1 |
8 |
0 |
|
Þyrla LHG, TF-GNÁ fór í tvær stórar skoðanir á árinu sem alls tóku 123 daga. Viðbragðsgeta hennar var þrátt fyrir það 64% sem telst vera mjög gott. TF-LÍF fór í eina stóra skoðun á árinu sem tók 25 daga og var viðbragðsgeta hennar 92%.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN var í skoðun alls 84 daga á árinu sem leið, viðbragðsgeta hennar var 69% en bið eftir varahlutum tók 26 daga. Að sögn flugtæknideildar er orðið mjög erfitt að fá varahluti í vélina sem komin er til ára sinna.
Myndir tóku áhöfn TF-SYN og Vala Oddsdóttir
08.01.09/HBS
TF-SYN, LÍF og GNÁ á Flugdaginn 2007.