Mál Landhelgisgæslunnar m.a. rædd á fundi dómsmálaráðherra Norðurlanda

Þriðjudagur 20. júní 2006.

Í fréttatilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í dag er sagt frá umfjöllunarefni fundar dómsmálaráðherra Norðurlanda.  Þar segir:

Dómsmálaráðherrar Norðurlanda hittust á fundi í Utstein-klaustri skammt frá Stavanger í Noregi í dag, 20. júní 2006. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat fundinn og gerði ráðherrunum m.a. grein fyrir breytingum á skipan lögreglumála, sem alþingi samþykkti 2. júní sl.

Ráðherrann ræddi einnig um aukin verkefni dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og stofnana á þess vegum, lögreglu, landhelgisgæslu og björgunarmiðstöðvar vegna brottfarar varnarliðsins. Hann fagnaði góðu samstarfi við danska varnarmálaráðuneytið vegna öryggisgæslu og björgunarverkefna á sjó og landi, samvinnu við Svía við ákvarðanir vegna nýrrar flugvélar fyrir landhelgisgæsluna og við Norðmenn við ákvarðanir um björgunaþyrlur auk þess sem Danir og Norðmenn hefðu veitt mikla aðstoð við ákvarðanir um nýtt varðskip.

Að frumkvæði Svía ræddu ráðherrarnir heimildir lögreglu til að beita sérstökum rannsóknaraðferðum og nauðsyn þess, að skýr lagaákvæði stæðu að baki slíkum heimildum.

Þá var rætt um aukið samstarf saksóknara á Norðurlöndum, Finnar gerðu grein fyrir áherslum sínum í Evrópusambandinu þegar þeir fara með forsæti þar síðari hluta ársins.

Í umræðum um þessar hugmyndir tók Björn Bjarnason fram, að hann teldi það geta skapað vanda bæði innan Evrópusambandsins og Schengensamstarfsins að flytja refsirétt og samstarf á því sviði undir meirihlutaákvarðanir innan Evópusambandsins.

 

Úr myndasafni: Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra fjallar um samning um leigu á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.