Gengið frá samningi um leigu á þyrlu

Föstudagur 9. júní 2006.

Sameiginleg fréttatilkynning frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og Landhelgisgæslu Íslands.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri LHG undirrituðu í dag samning við forsvarsmenn fyrirtækisins Air Lift þá Bjarne Slapgard framkvæmdastjóra og Erlend Folstad markaðsstjóri um leigu á Super Puma þyrlu frá og með 1. október næstkomandi.
 
Landhelgisgæslan hefur um árabil verið í talsverðum samskiptum við Air Lift og hafa þyrluflugmenn Landhelgisgæslunnar m.a. starfað á Svalbarða og á hamfarasvæðunum í Pakistan á vegum Air Lift í fríum sínum til að öðlast meiri reynslu. Samstarf Landhelgisgæslunnar og Air Lift hefur einnig falist í samnýtingu á varahlutum. Air Lift er bæði með þyrlur af gerðinni Super Puma og Aerospatiale Dauphin líkt og Landhelgisgæslan.
 
Þyrlan er leigð til eins árs með möguleika á framlengingu. Samningurinn hljóðar upp á 14 milljónir króna á mánuði og 150 þúsund krónur fyrir hvern floginn flugtíma.  Áætlaður kostnaður við samninginn til eins árs er um 210 milljónir króna. Ríkiskaup hafði umsjón með samningsgerðinni.

Fyrirhugað er að ganga frá samningum um aðra þyrlu fyrir nk. mánaðamót. Þá kynnti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra í ræðu sinni í tilefni undirritunarinnar að það er stefna ríkisstjórnarinnar að kaupa tvær sambærilegar þyrlur á næsta ári.  Auk þess er fyrirhugað að endurnýja flugvél Landhelgisgæslunnar og varðskip á næstunni eins og áður hefur verið kynnt.


Þórhallur Hákonarson frá Ríkiskaupum, Erlend Folstad markaðsstjóri Air Lift, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Bjarne Slapgard framkvæmdastjóri Air Lift. Mynd: DS/LHG.


Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti ræðu í tilefni af undirrituninni. Mynd: Friðjón R. Friðjónsson vefstjóri DKM.

 


Þórhallur Hákonarson frá Ríkiskaupum, Erlend Folstad markaðsstjóri Air Lift, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Bjarne Slapgard framkvæmdastjóri Air Lift og Geirþrúður Alfreðsdóttir nýráðinn flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar. Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar var fundarstjóri.