Landhelgisgæslan og lögreglan hafa eftirlit með utanvegaakstri

Mánudagur 5. júní 2006.

Þeir sem stunda utanvegaakstur geta átt von á eftirliti úr lofti en lögreglan og Landhelgisgæslan hafa tekið höndum saman um að stemma stigu við slíkum akstri. Nokkrir brotlegir voru bókaðir af lögreglunni um helgina og geta átt von á sektum.

Æfingatími flugáhafna er notaður í þessum praktíska tilgangi en mikið af sjúkraflugi Landhelgisgæslunnar er einmitt á svipaðar slóðir svo að með þessu fá áhafnir Landhelgisgæslunnar dýrmæta reynslu um leið og samskipti við lögregluna eru efld og lögbrjótar eru staðnir að verki.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í eftirlitsferð áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar, Lífar, með Selfosslögreglunni um helgina.  Friðrik Höskuldsson stýrimaður í áhöfn Lífar sendi skýringar með myndunum.

Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur/upplýsingaftr.



Þessi mynd er tekin til norðurs við vestanverðan Hengil.  Hér hefur fjöldinn allur af hjólum verið að spæna upp gróðurinn bæði nú og fyrr. Förin eru orðin ansi djúp, hálfur metri og víða dýpri en það.


Fimm mótorhjól koma akandi niður vesturhlíðar Hengils. Þessi eru langt utan vega.


Lögreglumaður frá Selfossi og handhafi lögregluvalds í áhöfn Lífar, þyrlu Landhelgisgæslunnar, ræða við mótorhjólaknapa.


Jeppi með vélsleðakerru að koma suður Bláfellsháls. Vegurinn (Kjalvegur) er lokaður allri umferð frá Bláfellshálsi að Hveravöllum, sem þýðir einnig að ekki er hægt að komast akandi að Hagavatnsskála nema virða lokunina að vettugi.


Bílaleigubíll á Bláfellshálsi.  Þessi var einnig á suðurleið á hálsinum og sýndi engin merki iðrunar þegar þyrlan kom aðvífandi.