Fjölþjóðlegu æfingunni Northern Challenge lokið

  • NC2010_IB_8262

Mánudagur 11.október 2010

Fjölþjóðlegri æfingu sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, lauk sl. fimmtudag eftir tveggja vikna æfingaferli. Landhelgisgæsla Íslands og NATO stóðu fyrir æfingunni sem var haldin á Keflavíkurflugvelli og á fyrrum varnarsvæðum utan hans,  svo sem í höfninni í Helguvík og Patterson svæðinu.

NC2010_IB_8305

Æfingin sem haldin var í tíunda skipti er mikilvægur þáttur í þjálfun sprengjusérfræðinga en þátttakendur hennar eru oft á tíðum teymi á leið til friðargæslu. Alls tóku 15 sprengjueyðirnarsveitir frá Danmörku, Noregi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Austurríki  þátt í æfingunni, auk sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Eftirlitsmenn frá Belgíu og Rússlandi fylgdust auk þess með framkvæmd æfingarinnar. Margir aðrir aðilar frá Landhelgisgæslunni sem og öðrum íslenskum stofnunum komu að, má þar nefna þyrludeild, köfunardeild, varðskipadeild, Ríkislögreglustjóra, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.

NC2010_IB_7082
Sprengjusérfræðingur að störfum

NC2010_IB_7075
Dansk - íslenska sprengjueyðingasveitin  undirbýr sprengjueyðingu

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í friðargæsluverkefnum í Líbanon og Írak þar sem sett hafa verið saman teymi sem saman standa af tveimur sprengjusérfræðingum frá Landhelgisgæslunni og bráðatækni frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins. Hafa þeir unnið í nánu samstarfi við sænsku stofnunina SRSA (Swedish Rescue Services Agency) og Sameinuðu þjóðirnar. Starf þeirra hefur falist í að hreinsa  sprengjur af átakasvæðum sem er þáttur í uppbyggingarstarfi því sem fer fram til að skapa friðvænleg skilyrði til framtíðar. Víða er mikið starf óunnið en talið er er að 90% þeirra sem látast af völdum sprengja á átakasvæðum séu börn. Mjög mikilvægt er að þjóðir sameinist í hreinsun svæðanna en slík hreinsun er eðli málsins samkvæmt hættuleg og mikilvægt að rétt sé að verki staðið.

Myndir © Árni Sæberg.

NC2010_MG_7131
Varðskipið Týr tók einnig þátt í æfingunni

NC2010_MG_7557

TF-Líf flutti sprengjusérfræðinga á vettvang

NC2010_MG_7595
Sprengjusérfræðingar síga niður í varðskip

NC2010_MG_6536
Vélmenni eru nauðsynleg við vinnu sprengjusérfræðinga

NC2010_IB_8208
Leitað að "sprengju" í Helguvík

NC2010_IB_7129

Unnið að því að gera bílsprengju óvirka.....

NC2010_IB_7139
Bílsprengjunni eytt. Sprengingin verður mun vægari en hún hefði annars
orðið.