Reykköfunaræfing með SHS um borð í v/s ÆGIR
Föstudagur 1. apríl 2011
Fyrir skömmu var haldin reykköfunaræfing um borð í varðskipinu ÆGIR með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS). SHS sér um þjálfun á reykköfururm fyrir nemendur Brunamálaskólans og var ákveðið að setja upp verkefni um borð í varðskipinu, eins og um brennandi skip, úti á rúmsjó, væri að ræða.
Tíu nemendur og þrír kennarar komu um borð í varðskipið með þyrlunni TF-GNÁ, ásamt búnaði sínum. Sett voru upp flókin og erfið verkefni sem nemendurnir leystu í samvinnu við áhöfn varðskipsins.
Eldsvoðar í skipum þykja einhver þau erfiðustu útköll sem menn lenda í og margt sem veldur. Til dæmis er hitaleiðni mikið vandamál, þrengsli, veður og sjólag. Einnig geta ýmis efni um borð truflað björgunaraðgerðir. Mikilvægt er að gæta sem best að stöðugleika skipsins meðan unnið er að slökkvistörfum.
Hrannar Sigurðsson flugvirki LHG fer yfir helstu atriði varðandi þyrlur LHG
Á leið í æfingu
Sigið um borð í varðskipið
Örugg lending á þilfarinu
Farið í reykköfun
Leiðbeinendur fylgjast með tímanum og eru í talsstöðvarsambandi
við reykkafara
Skipverja komið til aðstoðar í æfingunni.
Spjall að æfingu lokinni
Sigurður Steinar Ketilsson, skipherra
Páll Geirdal, yfirstýrimaður, Rafn Sigurðsson, háseti og Björn J. Gunnarsson,
háseti.
Hópurinn við komuna til hafnar.
Myndir: SHS